<$BlogRSDUrl$>

laugardagur, ágúst 28, 2004

Jæja dúllurnar mínar.....mikið að gera....meira fjör.....mikið gaman ;) Er það ekki annars svoleiðis? Mér líður svo vel að hafa verið byrjuð að kenna aftur...alveg endurnærð. Fór ég þennan svakalega starfsmannafund í gær hjá Hreyfingu....tók ekki nema 3 klukkutíma. Kom heim og fannst ég hálf heilaþvegin. Samt naðsynlegt að halda svona hópeflingu.
Svo stendur til að hafa CRAZY weekend þessa helgina. Hún samanstendur af ACE einkaþjálfaranámskeiði báða daga frá 9 til 17 og svo vinnu frá 17 til miðnættis. Geri aðrir betur. (Ekki það að þetta sé eitthvað eftirsóknarvert....algjör killer rétt út sagt...hreinn og beinn killer)
Svo kom hún Brynhildur í bæinn í gær...fór og hitti hana í dag, mikið lifandis skelfingar ósköp var ég glöð að sjá hana. Minningarnar frá Danmörku gjörsamlega streymdu nonstop þessa litlu 4 tíma sem að við möluðum um alllt og ekkert.
Liggur við að manni langi aftur út ;) hehe....neeee.....ætla að kyrrstetja mig. ALLAVEGANNA til áramóta, so no worries.

Enn og aftur til hamingju með afmælið Tóta mín. Mér finnst alveg rosalega leiðinlegt að komast ekki í afmælið til þín. Ég myndi vera hoppandi vitlaus fúl ef að ég væri þú. Gef þér leyfi til að sparka í mig þegar þú hittir mig næst.

Saknaðarkveðjur...Erla ;)

------------------------------------------------------

þriðjudagur, ágúst 24, 2004

Valkvíði

Er þessa dagana meira en lítið að vesenast með þetta blessaða háskólanám....er ekkert viss hvort að ég sé að gera það rétta. Vildi óska þess að einhver gæti tekið ákvörðunina fyrir mig....en það er víst ekki hægt :( Sá á kvölina sem á völina..........

Fór og kenndi fyrsta spinningtímann frá því ég sleit vöðvann....mikið svakalegt hörkufjör var það. Ég var að tapa mér ég hafði svo mikla orku. Hrópaði og kallaði og píndi greyin áfram, það var æðislegt :) En svoleiðis á það að vera, ég er pottþétt á því að þetta var einn af bestu tímunum sem ég hef kennt. Orkuflæði dauðans ;p

Þetta blessaða stærðfræðinámskeið í dag...what a waste of money, ég kunni þetta allt saman og miklu meira til. Bara bull að fara á svona námskeið. Ætla sko ekki aftur ;)
Jæja babes.....rúmið kallar......*geisp*......góða nótt.......

------------------------------------------------------
Erla Jóhannsdóttir's Facebook profile

This page is powered by Blogger. Isn't yours?