sunnudagur, apríl 20, 2003
Gleðilega páska allir! Ég held samt að það ætti að hætta með þennan páskaeggjasið, ég sver það, eða a.m.k. að banna þau innan 18 ára. Ég gaf litlu systkinunum í morgun og ég hef aldrei séð þau jafn ofvirk, þau voru á við10 stykki brjálæðingar. Hlaupandi út um allt og rífa allt niður, sem var nú kannski ekkert svo sniðugt þar sem að mútta fékk taugaáfall. Fermingarhreingerningin var nefnilega að klárast í gærkvöldi en það lítur út fyrir að við þurfum að endurtaka leikinn í kvöld............man.............:( En jæja, lærdómurinn bíður og páskafríið að verða búið. See you later :)
------------------------------------------------------
------------------------------------------------------
Comments:
Skrifa ummæli