mánudagur, júlí 19, 2004
vá...........ég hef ALDREI látið líða svona langt á milli pósta, ætli það sé ekki bara af því að maður hefur nóg að gera? Æi, ég veit ekki, það er engin afsökun.
En annars, þá er ég búin að vera að vinna í Hreyfingu og mér líka mjög vel við mig þar, ætla að halda áfram að vera þar í vetur. Varð reyndar svo óheppin að slíta á mér kálfann um daginn þannig að ég hef ekkert getað kennt síðustu 2 vikur eða svo :( Frekar fúlt.
Hef annars ákveðið að ég ætla í háskólann í haust, ætla að fara í tölvunarfræði, sé til hvort að ég fíli þetta. Sakar ekki að fara og prufa og ef að þetta gengur ekki upp þá skipti ég bara yfir.
Er líka að klára einkaþjálfarann núna, lendi reyndar í því að hafa 1sta mánuðinn í háskólanum samhliða náminu fyrir einkaþjálfarann, en ég hlít að geta klárað þetta. Hef fulla trú á mér *hóst,hóst* ;)
En jæja, þarf að fara að hoppa upp í vinnu, svo er það bara djammið í kvöld :) Er búið að bjóða mér í svakalegt tequilapartý sem á víst að vera flæðandi út um allt, fæ mér kannski 1 sopa ;)
adios amigitos!
------------------------------------------------------

Comments:
Skrifa ummæli