þriðjudagur, júlí 06, 2004
vá...mér líður eins og að ég kunni ekki að blogga lengur. Við MH-gals erum annars búnar að vera duglegar að blogga okkar á milli á nýju síðunni okkar. Jenný darling er loksins farin heim og það er orðið dáldið einmanalegt heima...ég get ekki annað sagt. Í staðinn þá spjalla ég bara við Perlu og á kvöldin þá knúsa ég bara bangsann minn og sníti mér í koddann (Ég er samt ekkert SVONA einmana.....bara pínu)
Annars gengur allt vel, er komin á fullt með kennsluna í Hreyfingu og það gengur vonum framar, bíð spennt eftir viðbrögðum hjá fólkinu sem að ég kenni sem og yfirmönnum. Því fleiri viðbrögð, því betra......virkar dáldið eins og TV-þáttur, því umdeildari, því meira áhorf ;)
Svo er ég komin á svakalega drossíu og keyri um á henni hist og her um bæinn (sem ég þarf að minnka til að geta borgað af bílnum) hehe.....En jeminn eini hvað ég er allt í einu orðin snobbuð með bílinn....ég sver það, ég nennti sjaldnast að þvo bílinn þeirra mömmu og Einars (feitt samviskubit) en ég er búin að þvo bílinn minn 2var og ég er ekki búin að eiga hann í viku (HJÁLP).
Well....ást og friður....da Erla
------------------------------------------------------

Comments:
Skrifa ummæli