<$BlogRSDUrl$>

þriðjudagur, maí 02, 2006

Jæja, best að poppa aðeins upp á síðuna ;)
Það er nú ansi margt búið að ske síðan í síðustu færslu, það helsta væri nottla páskarnir, mikið ógó var gaman að hitta Silju og allar MH-gels skvísur og tjútta með ykkur....held meira að segja að röddin sé ekki enn komin í lag eftir eitt gott föstudagskvöld.....(þið sem voruð á staðnum, vitið hvað ég meina ;) )
Annars er ég að fara í próf á morgun (Plz save me God) og er nett tjilluð yfir því. Held ég hafi bara ákveðið að "fuck it, shit happens" og sleppa öllu stressi í ár :p

Ég er flutt á Álftanesið í bili og hef skemmt mér konunglega að leika mér með krökkunum og skella mér í hjólatúra í sveitinni og sonnna.......reyndar dró Einar mig út um daginn í svona "smá" hjólatúr.....1 og hálfum tíma síðar komum við loksins heim með svona líka sveitta hjólarassa enda sýndi kílómetramælirinn 23 km...... SMÁ hjólatúr takk fyrir neitakk með Einari aftur :D

Annars fer ég að fá þetta svona líka fína fjallahjól inn í bílskúr í mánuðinum, get ekki beðið. Eru ekki einhverjir fleiri hérna sem vilja deila þessarri hjóla/útiveru dellu með mér???

Prófin klárast 15. maí. Mæli sterklega með tekíla, sundbol, sólskini og stuði ;) Arriba, arriba ;)

------------------------------------------------------
Comments: Skrifa ummæli
Erla Jóhannsdóttir's Facebook profile

This page is powered by Blogger. Isn't yours?