<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur, júní 07, 2006

Ravison travis....

Jú, ég er orðin frísk og fær í flestan sjó eftir veikindin síðustu helgi. Held að ég hafi verið svona fljót í gegnum veikindin bara vegna þess hve vel var hugsað um mig ;)
Það er nú ekki mikið að frétta svosem.....ég ákvað að vera sportyspice aftur og fór í ræktina í gærkvöldi sem að skilaði sér í mjög þreyttri og laslegri "Erlu" og var með svimakast langt fram eftir kveldi. Ég bara skil þetta ekki!

Við skvísurnar fórum í pottapartý til Ester á sunnudaginn og það vera stuð, takk fyrir mig Ester ;) Við kjöftuðum til kl.4 um nóttina takk fyrir :p Gátum einhvernveginn ekkert ákveðið okkur hvort við ættum að kíkja í bæinn eða ekki ;)

Ég setti svo allt í fluggírinn á mánudaginn og gekk frá ÖLLU dótinu mínu heima á Álftanesi.......ég var búin að leggja allan bílskúrinn undir kassa og dót frá mér....en ég og mamma fórum á flipp og gengum frá þessu.
Til þess að skapa pláss inni í herberginu mínu þá ákváðum við að taka niður skrifborðið mitt til fjölda ára og það gekk ekki betur en svo í æsingnum að við eiginlega bara rústuðum því...hehe.....vorum eins og Gö og Gokke :D

Anyways, have a nice day....

------------------------------------------------------
Comments: Skrifa ummæli
Erla Jóhannsdóttir's Facebook profile

This page is powered by Blogger. Isn't yours?