<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur, desember 13, 2006

Sumarvetrardekk???



Já, mig langar stundum til þess að trúa því að bíllinn minn sé yfirnáttúrulegur. Mér finnst það gera svo mikið fyrir egóið, þið skiljið ;)
Ég er ekki enn búin að setja vetrardekk undir bílinn en hann rennur svo assgoti vel að ég er alvarlega að hugsa um að sleppa því í vetur? (7,9,13)
Okey, kannski 3-4 hafi þurft að sveigja frá mér á hraðbrautunum (hraðbrautir á Íslandi?) but whats the big deal? :-)

Ég skellti mér út á lífið síðustu helgi....já, þið lesið það rétt. Erla innipúki, sportari og umfram allt getur kúrað í rúminu sínu forever fór út!
Mín tók smirnoff ice á þetta og nokkur tekílaskot.....þið sem hafið séð þetta áður in history vitið hvernig Erla blönduð með smirnarra og tequila endar *hikk*
Ég meira segja gerðist svo djörf að dansa inni á ÓLÍVER...hvað er það?!

Annars eru nýjustu fréttir þær að eftir áramót verður mín að kenna KICKBOX og AFRÓ í WorldClass og ég skora á vini og vandamenn til að koma og kíkja á þetta.....get allaveganna lofað ykkur miklu fjöri og nokkrum hlátrasköllum ;) Og jú, pottþétt SVITA líka....hehe....

Sííjú leiter geiters *smoooootchie*

------------------------------------------------------
Comments: Skrifa ummæli
Erla Jóhannsdóttir's Facebook profile

This page is powered by Blogger. Isn't yours?